Book cover

Ver hljóð, mín sál

Sálmar, 41


0:00 0:00
Introduction
All Verses

1. Ver hljóð, mín sál, þér Son Guðs berst við hlið, sigur þér veitir og eilífan frið. Með stilling ber því sorgir, kross og kvöl, konungi lífsins fel þitt ráð og böl. Ver hljóð, mín sál, því æðsti ástvin þinn öruggt þig leiðir inn í fögnuð sinn.

2. Ver hljóð, mín sál, Guð vel mun vernda þig vandþrædda framtíð líkt og genginn stig. Lát ekkert hagga trausti von og trú, trygglega skýrist allt, sem leynt er nú. Ver hljóð, mín sál, því veðrin vinda hörð valdi Krists lúta enn sem fyrr á jörð.

3. Ver hljóð, mín sál, ótt líður ævistund, eilífðin rennur upp við Drottins fund. Heimsbölið verður gleymt og grafið þá, guðlegur fögnuður þér skín á brá. Ver hljóð, mín sál, því eftir allt sem var örugg og blessuð munum hittast þar.