Book cover

Ljós heimsins

Sálmar, 80


0:00 0:00
Introduction
All Verses

1. Heyr! ó, jörð, og hlusta þjóð. Himnesk óma dýrðarljóð. Syngja englar, syngið þér! Sonur Guðs nú fæddur er. Dýrð sé Guði, dimman flýr, Drottinn sjálfur hjá oss býr.

Sorg er breytt í sigurhrós. Séð fá þjóðir heimsins ljós. Heyr! ó, jörð og hlusta þjóð. Himnesk óma dýrðarljóð.

2. Jólin flytja frið á jörð. Fagnið, syngið þakkargjörð! Kristur Jesús kominn er, kóngi lífsins fagna ber. Ljós er kveikt í lágum bæ, ljós um himin, jörð og sæ.

Sorg er breytt í sigurhrós. Séð fá þjóðir heimsins ljós. Heyr! ó, jörð og hlusta þjóð. Himnesk óma dýrðarljóð.