Book cover

Upp frá dauðum er hann risinn

Sálmar, 73


0:00 0:00
Introduction
All Verses

1. Upp frá dauðum er hann risinn, oss með söng því fagna ber. Grafarríkið rofið hefur, rödd sú glöð um heiminn fer. Kristur dauðans valdið vann, veröld leysti’ úr fjötrum hann.

2. Syngið Drottni sigurljóðin, sálma dýrð og helgimál. Ekkert skýja skaf á lofti skyggir morguns geislabál. Ljóminn sem í austri er okkur páskateiknið ber.

3. Upp frá dauðum er hann risinn, opnað hefur himins hlið. Laus úr synda fanga fjötrum fengum vér hans dýrðarsvið. Birtan þar oss ber til sín björt er páskasólin skín.