Book cover

Vér heiðrum Jesú heilagt nafn

Sálmar, 62


0:00 0:00
Introduction
All Verses

1. Vér heiðrum Jesú heilagt nafn, til hans vor söngur er; á Golgata hann lét sitt líf, svo lifað gætum vér.

2. Með för er burt hann fór úr gröf, varð frelsun heimsins skýrð; hans boðskap fékk hver syndug sál, um sælu’ í himins dýrð.

3. Í sakramenti sýndur er, oss sigur lausnarans; þér helgir vottar verið með, að vernda minning hans.

4. Ó, sonur Guðs vér þökkum það, sem þú oss veittir hér; að sýndir oss þá lífsins leið, sem lögð til himins er.