Book cover

Í jötu

Barnasöngbók, 26


0:00 0:00
Introduction
All Verses

1. Hann enga á vöggu, en unir sér þó í jötunni stóru, og hvílir með ró. Og stjörnurnar brosa um bláveg til hans sem barn er síns tíma, og bróðir hvers manns.

Ó sof, (ó sof,) ó sof, (ó sof,) þú Jesús, í jötunni rótt. Ó sof, (ó sof,) ó sof, (ó sof,) Jesús, á jóla nótt.

2. Í fjárhúsi sefur nú féð allt svo rótt, en Jesús einn vakir í jötunni hljótt. Ég ann þér, ó Jesús, ég ann þér svo heitt og aldrei því verður á ævinni breytt.

Ó sof, (ó sof,) ó sof, (ó sof,) þú Jesús, í jötunni rótt. Ó sof, (ó sof,) ó sof, (ó sof,) Jesús, á jóla nótt.

3. Ó, ver hjá mér, Jesús, mín vörn og mitt skjól og veit, að ég finni þinn fögnuð hver jól. Ég bið þig að blessa öll börnin þín hér og búa þau undir að lifa hjá þér.

Ó sof, (ó sof,) ó sof, (ó sof,) þú Jesús, í jötunni rótt. Ó sof, (ó sof,) ó sof, (ó sof,) Jesús, á jóla nótt.