1. Jesús kom til Jóhannesar í Júdeu´ á sinni tíð. Jesús var í Jórdan skírður, Jórdan var þá lygn og blíð.
2. Jesús sagði Jóhannesi: „Við Jórdan er réttar gætt. Fyrirmælum föður okkar fyllilega er hér mætt.“
3. Öll við hér af orðum Jesú einatt lærdóm drögum nú. Skírnin hún er upphaf lífsins, innri vígsla´ í von og trú.