Book cover

Himnafaðir elskar mig

Barnasöngbók, 16


0:00 0:00
Introduction
All Verses

1. Í hvert sinn, sem heyri´ eg fugla söng og horfi´ upp í heiðloftin blá, og finn, þegar rignir framan í mig og vindurinn feykist fram hjá, í hvert sinn, sem finn ég fagra rós og ilmvið, sem angan ber, þá fagna ég mínum fagra heim, sem Guð faðir minn skóp handa mér.

2. Hann augu mér gaf, svo mætti ég sjá hinn margbreytta fiðrilda lit, og heyrn mér hann gaf, svo heyra ég má hugum fangandi tónanna glit. Mér lífið hann gaf, minn hug og sál, ég, herra Guð, lofa þig fyr´ sköpunarverkið, sem víst heyri´ eg til, og ég veit, að Guð minn elskar mig.