Laugardagur er dýrðarstund, þegar Drottinn oss helgina gefur. Við kaupum, skúrum, því megnug er mund, fram á mánudag ekkert tefur Við burstum föt vor og fegrum skó, það er frágangsins ljúfasti hagur. Og við snyrtum hönd vora´ og hárið með ró, því heilsa mun sunnudagur.