Book cover

Kristur færir frið

Tónlist úr Barnavini


1. Kristur færir frið, frelsi‘ og lífsins grið. Gæsku himins gnægð er af, því hann líf sitt gaf. Hlýðið orð hans á, helgast af þeim má. Er hér löng er lausnarbið, Kristur færir frið.

Hann veitir von, er lífsins lind. Hann veitir vörn og styrk gegn synd. Hann okkur verndar frá sterkum vind. Ef fjötruð erum við, Kristur færir frið.

2. Kristur færir frið, fús hann leggur lið, lífsins vegi leiðir á, líknar sárum frá, heyrir hugans fár, þerrar hjartans tár. Ef við himins höldum sið, Kristur færir frið.

Hann veitir von, er lífsins lind. Hann veitir vörn og styrk gegn synd. Hann okkur verndar frá sterkum vind. Ef fjötruð erum við, Kristur færir frið. Ef fjötruð erum við, Kristur færir frið.