Book cover

Drottni treystum

Tónlist úr Til styrktar ungmennum


1. Er heimi stöðugt hrakar hér og himinn þrunginn er, hann sauði sína kallar á og sveit hann fyrir fer. Heyrum hans raust og finnum hans traust. Orð hans við þekkjum vel. Ljós okkur er, hann líf okkar leiðir hér.

Þótt brenni bál og bresti’ á hríð, er myrkvast sál, til himins höldum blíð. Drottni treystum allt vort líf. Þótt falli tár og veitist sár, er hann vort ljós, sem lýsir lífsins veg. Drottni treystum allt vort líf. Drottni treystum allt vort líf.

2. Við berumst ekki burt í neyð, því brautin hans er greið. Þótt %öllin hefti okkur för, við fetum trúarleið. Augu þá sjá, svo frið fyllumst þá, hann huggar hverja sál. Ljós okkur er og hvern dag hann mér, hvern dag mér fyrir fer.

Þótt brenni bál og bresti’ á hríð, er myrkvast sál, til himins höldum blíð. Drottni treystum allt vort líf. Þótt falli tár og veitist sár, er hann vort ljós, sem lýsir lífsins veg. Drottni treystum allt vort líf. Drottni treystum allt vort líf.

Af öllu’ okkar hjarta, höfnum veraldar leið og treystum á Drottin, skaparann.

Þótt brenni bál og bresti’ á hríð, er myrkvast sál, til himins höldum blíð. Drottni treystum allt vort líf. Þótt falli tár og veitist sár, er hann vort ljós, sem lýsir lífsins veg. Drottni treystum allt vort líf. Drottni treystum allt vort líf. Drottni treystum allt vort líf.