1. Eitt verk á þinni vakt, er voldugt og einstakt, þér fyrirbúið föður frá. Þar krafta krafist er sem kunna’ að hjálpa þér í raunum lífs á langri leið. Hann skýlir stormum lífsins frá og æ hann staldrar sínum hjá.
Mikið er verkið sem oss er falið, þú hefur hlutverk í huga hans. Þú þarft ei að þreytast, hjá þér hann verður og hann mun vaka yfir hér verki sínu. Því verki, því mikla verki.
2. Ef hjartað helgar þú mun hann þér efla trú, afhjúpa áform fyrir þig. Þig hann mun helga sér, svo hrein hans ástin er og óaðfinnanleg.
Mikið er verkið sem oss er falið, þú hefur hlutverk í huga hans. Þú þarft ei að þreytast, hjá þér hann verður og hann mun vaka yfir hér verki sínu. Því verki, því mikla verki.
Þetta’ er hans dýrðarverkið og hann vill þér veita náð, að vísa leið og gefa ráð.
Mikið er verkið sem oss er falið, þú hefur hlutverk í huga hans. Þú þarft ei að þreytast, hjá þér hann verður og hann mun vaka yfir hér verki sínu. Því verki, því mikla verki. Verki sínu. Því verki, því mikla verki.