Book cover

Nú Ísraels lausnari

Sálmar, 26


0:00 0:00
Introduction
All Verses

1. Nú Ísraels lausnari von allra vor,mun verða á jörðunni hér,og færa oss huggun og fögnuð og þor.Hann frelsari’ og konungur er.

2. Vér vitum hann kemur og leiðir sitt lið,þá leið er til Síons er veitt.Þeim grátandi’ í myrkrinu gefur hann frið,og göngunni’ í fögnuð er breytt.

3. Í vantrú og myrkrinu leiðin vor lá,vér lifðum í syndum og neyð.Og óvininn gladdi þá sorg vora’ að sjá,en sjá, nú er frelsunin greið.

4. Sem börnum í Síon góð fregn er oss færð,er fyllingu tímans oss ber.Þar gleðjist sem eruð af anda Guðs nærð,að endurlausn brátt verður hér.