Book cover

Trú mín er á Krist

Sálmar, 34


0:00 0:00
Introduction
All Verses

1. Trú mín er á Krist, hann kóngur er,með lofsöngshljóm frá hjarta mérnú gjalli rödd með gleðimálsem gleðji’ og hrífi hverja sál.Trú mín er á Krist, Guðs son er sá,hans sál kom hingað jörðu á,með krafti Guðs hann verkin vann,nú vegsamist og lofist hann.

2. Trú mín er á Krist, ó, tignaða orð,af konu fæddur kom á storðað dauðlegt hold í fjötrum fættsé frelsi hans og anda gætt.Trú mín er á Krist, vort leiðarljós,af gleði syng ég honum hrós,hann bauð oss föllnum: Fylgið mér,í faðmi Guðs svo búið þér.

3. Trú mín er á Krist, minn kóng, minn Guð,hans kenning æ sé vegsömuð,hans sannleiks ljós æ lýsir enn,því lofa hann og tigna menn.Trú mín er á Krist, hann frelsað mig fær,er freistinganna hrammur slær,í ást og trú um eilífð býmeð útvöldum hans ríki í.

4. Trú mín er á Krist, hann æðstur er,af anda sínum veitir mér,hans raust mér gleðiboðskap ber,í beiskri nauð hann lýsir mér.Trú mín er á Krist, svo hvað sem ernú koma má og ógna mér,hans endurkoma er mér vísþá upp hans veldi’ á jörðu rís.