1. Ver hljóð, mín sál, þér Son Guðs berst við hlið,sigur þér veitir og eilífan frið.Með stilling ber því sorgir, kross og kvöl,konungi lífsins fel þitt ráð og böl.Ver hljóð, mín sál, því æðsti ástvin þinnöruggt þig leiðir inn í fögnuð sinn.
2. Ver hljóð, mín sál, Guð vel mun vernda þigvandþrædda framtíð líkt og genginn stig.Lát ekkert hagga trausti von og trú,trygglega skýrist allt, sem leynt er nú.Ver hljóð, mín sál, því veðrin vinda hörðvaldi Krists lúta enn sem fyrr á jörð.
3. Ver hljóð, mín sál, ótt líður ævistund,eilífðin rennur upp við Drottins fund.Heimsbölið verður gleymt og grafið þá,guðlegur fögnuður þér skín á brá.Ver hljóð, mín sál, því eftir allt sem varörugg og blessuð munum hittast þar.