Book cover

Hóf þín dagsins hugsun fyrsta?

Sálmar, 47


0:00 0:00
Introduction
All Verses

1. Hóf þín dagsins hugsun fyrstahjartans bænarmál?Baðstu Guð um blessun sína,baðstu’ í Jesú nafni’ um þínasigurtrú í sál?

Ó, hve bænin huggar hrjáða,hún mun snúa nótt í dag.Hún, ef finnst þér fátt til ráða,færir allt í lag.

2. Þegar reiði’ í huga hafðir,hvað um bænarsvar?Ef þú miskunn metið hefur,muntu’ ei sá sem fyrirgefurþeim sem böl þér bar?

Ó, hve bænin huggar hrjáða,hún mun snúa nótt í dag.Hún, ef finnst þér fátt til ráða,færir allt í lag.

3. Þegar sár þér veröld veitti,varstu’ í bænarhug?Ef þín sál var sorgum hlaðin,sýndi bæn þér vonarstaðinn,hugans hærra flug?

Ó, hve bænin huggar hrjáða,hún mun snúa nótt í dag.Hún, ef finnst þér fátt til ráða,færir allt í lag.