Book cover

Ó, faðir, gjör mig lítið ljós

Sálmar, 48


1. Ó, faðir, gjör mig lítið ljósum lífs míns stutta skeið,til hjálpar hverjum hal og drós,sem hefur villst af leið.

2. Ó, faðir, gjör mig blómstur blítt,sem brosir öllum mótog kvíðalaust við kalt og hlýtter kyrrt á sinni rót.

3. Ó, faðir, gjör mig ljúflingslag,sem lífgar hug og sálog vekur sól og sumardag,en svæfir storm og bál.

4. Ó, faðir, gjör mig styrkan stafað styðja hvern sem þarf,uns allt það pund, sem Guð mér gaf,ég gef sem bróðurarf.

5. Ó, faðir, gjör mig sigursálm,eitt signað trúarlag,sem afli blæs í brotinn hálmog breytir nótt í dag.