1. Betlehems völlunum var hann á,voldugi söngurinn langt hér frá.
Guði sé dýrð Guði sé dýrðGuði sé dýrð á himnum hátt.Frið á jörð hér flytjum vér,farsæld öllum mönnum ber.
2. Fjárhirðar heyrðu þann fagra óð,fagnandi englanna dýrðar ljóð.
Guði sé dýrð Guði sé dýrðGuði sé dýrð á himnum hátt.Frið á jörð hér flytjum vér,farsæld öllum mönnum ber.
3. Máttug í söngnum er mildin há,miskunnar boðskapur himni frá.
Guði sé dýrð Guði sé dýrðGuði sé dýrð á himnum hátt.Frið á jörð hér flytjum vér,farsæld öllum mönnum ber.
4. Drottinn með englunum einnig véróskum að gleðjast í söng frá þér.