1. Andi Guðs sveif áður fyrryfir vatnadjúpi.Upp þá lukust ljóssins dyr,létti’ af myrkra hjúpi.Upp reis jörðin ung og ný,árdags geislum böðuð í,þá úr dimmu djúpi.
2. Andi Guðs sveif annað sinnyfir vatni köldu,þegar lét sig lausnarinnlauga’ í Jórdans öldu.Opnast himinn, eins og nýttupp rann náðarljósið blíttdauða’ úr djúpi köldu.
3. Andinn svífur enn sem fyryfir vatni tæru,opnast himins dýrðar dyrDrottins börnum kæru.Eftir skírnar blessað baðblómið upp vex nýdvöggvaðlífs í ljósi skæru.