Book cover

Borinn er sveinn í Betlehem

Sálmar, 83


1. Í Betlehem er barn oss fætt, barn oss fætt. Því fagni gjörvöll Adams ætt.

Hallelúja, hallelúja.

2. Það barn oss fæddi fátæk mær, fátæk mær. Hann er þó dýrðar Drottinn skær.

Hallelúja, hallelúja.

3. Hann var í jötu lagður lágt, lagður lágt. en ríkir þó á himnum hátt.

Hallelúja, hallelúja.

4. Hann vegsömuðu vitringar, vitringar. hann tigna himins herskarar.

Hallelúja, hallelúja.

5. Þeir boða frelsi’ og frið á jörð, frið á jörð. og blessun Drottins barnahjörð.

Hallelúja, hallelúja.

6. Vér undir tökum englasöng, englasöng. og nú finnst oss ei nóttin löng.

Hallelúja, hallelúja.

7. Vér fögnum komu frelsarans, frelsarans. vér erum systkin orðin hans.

Hallelúja, hallelúja.

8. Hvert fátækt hreysi höll nú er, höll nú er. því Guð er sjálfur gestur hér.

Hallelúja, hallelúja.

9. Í myrkrum ljómar lífsins sól, lífsins sól. Þér, Guð, sé lof fyrir gleðileg jól.

Hallelúja, hallelúja.