Book cover

Öll sköpun syngi Drottni dýrð

Sálmar, 16


0:00 0:00
Introduction
All Verses

1. Öll sköpun syngi Drottni dýrð, Drottni sé vegsemd gjörvöll skírð. Hallelúja! Hallelúja! Þú, gullin sól í sindur glóð, þú, silfurmáni, ljúfum óð.

Hallelúja! Hallelúja! Hallelúja! Lofið Drottin! Hallelúja!

2. Þú, vindur hvass, við mikinn mátt, þér ský er siglið himin hátt. Hallelúja! Hallelúja! Þín, dögun, ómi lofgjörð löng, þér, ljós að kveldi syngið söng.

Hallelúja! Hallelúja! Hallelúja! Lofið Drottin! Hallelúja!

3. Þér, straumvötnin tandur tær, tónflóði veitið Drottni nær. Hallelúja! Hallelúja! Þú, eldur, snillibjartur brenn, birtu oss ljær og yl í senn.

Hallelúja! Hallelúja! Hallelúja! Lofið Drottin! Hallelúja!

4. Þú, móðir jörð, sem dag við dag dýrlega blessar lífs vors hag. Hallelúja! Hallelúja! Ávöxtu þína, blómin blíð, birta lát dýrð Hans ár og síð.

Hallelúja! Hallelúja! Hallelúja! Lofið Drottin! Hallelúja!