Book cover

Það engill uppheims var

Sálmar, 6


0:00 0:00
Introduction
All Verses

1. Það engill uppheims var, sem alda rauf hér þögn, frá himni boðin bar, þá björtu, ljúfu sögn. Sjá hæð Kúmóra, hún er hér, þar heilagt rit eitt falið er. Sjá, hæð Kúmóra, hún er hér, þar heilagt rit eitt falið er.

2. Mórónís innsigli´ er það auðkennt jörðu í, uns Guð sín boðin ber, að birtast skuli´ á ný. Til ljóss þess aftur leið er gjörð, að leiða´ inn ríki Krists á jörð. Til ljóss þess aftur leið er gjörð, að leiða´ inn ríki Krists á jörð.

3. Um Jósefs ætt það er og eyddra þjóða brot, sem eitt sinn áttu hér sín örlaganna þrot. Og guðspjalls auðlegð einnig þar með opinberun veitir svar. Og guðspjalls auðlegð einnig þar með opinberun veitir svar.

4. Nú fylling fengin er hins fyrirheitna dags, lát jörðu hlýða hér og hverfa myrkur strax; flyt ritið burt svo berist það með birtu´ og dýrð á sérhvern stað. Flyt ritið burt svo berist það með birtu´ og dýrð á sérhvern stað.

5. Hve glöð mun Ísrael nú aftur safnast heim, við ráð sem reynast vel skal reist Jerúsalem, þá Síon rís með geislaglans í guðdómsljósi sannleikans. Þá Síon rís með geislaglans í guðdómsljósi sannleikans.