Book cover

Er í lífsins orðum leita

Sálmar, 106


0:00 0:00
Introduction
All Verses

1. Er í lífsins orðum leita, ljúfi faðir, bið ég þig: Gef mér þekking, greind og visku, góði faðir, leið þú mig.

2. Er í lífsins orðum leita, lát þinn anda vera hér. Ljósi þínu’ og leyndardómum ljúk upp, faðir, fyrir mér.

3. Er í lífsins orðum leita, líkn mér færi huggun þín. Miskunn þín og máttur, faðir, megni’ að græða sárin mín.

4. Er í lífsins orðum leita, leiði hlýðni’ og bæn til þín. Orð þitt geymir eilíft lífið, ætíð sé það leiðsögn mín.