Book cover

Hann enga á vöggu

Sálmar, 82


0:00 0:00
Introduction
All Verses

1. Hann enga á vöggu en unir þó sér í vöggunni stóru, þar Jesús minn er. Og stjörnurnar brosa um bláveg til hans, hann barn er síns tíma og barn sérhvers manns.

2. Í fjárhúsi sefur nú féð allt svo rótt, en Jesús einn vakir í jötunni hljótt. Ég ann þér, ó Jesús, ég ann þér svo heitt, og aldrei því verður á ævinni breytt.

3. Ó, ver þú mér, Jesús, mín vörn og mitt skjól og gef að ég geti þig glatt sérhver jól. Ég veit að þú blessar hvert barn hér á jörð, ó, Jesús, þér eru öll jólaljós gjörð.