Book cover

Fögur er foldin

Sálmar, 86


1. Fögur er foldin, heiður er Guðs himinn, indæl pílagríms ævigöng. Fram, fram um víða veröld og gistum í Paradís með sigursöng.

2. Kynslóðir koma, kynslóðir fara, allar sömu ævigöng. Gleymist þó aldrei eilífa lagið við pílagrímsins gleðisöng.

3. Fjárhirðum fluttu fyrst þann söng Guðs englar, unaðssöng, er aldrei þver: Friður á foldu, fagna þú, maður, frelsari heimsins fæddur er.