Book cover

Drottin vor reis dauðum frá

Sálmar, 74


0:00 0:00
Introduction
All Verses

1. Drottinn vor reis dauðum frá, dýrð hans vaki öllum hjá. Sífellt honum séu gjörð sigurljóð á himni’ og jörð.

Hallelúja Hallelúja Hallelúja Hallelúja

2. Endurlausnarverkið vann, veg í kærleik sýndi hann, hjúpað dýrð hans dauðastríð. Dimma jarðar liðin tíð.

Hallelúja Hallelúja Hallelúja Hallelúja

3. Drottinn lifði dauða sinn, dauði hvar er broddur þinn? Hans er fórnin heilög gjöf; hvar þinn sigur dimma gröf?

Hallelúja Hallelúja Hallelúja Hallelúja