Book cover

„Fylg þú mér“

Sálmar, 55


0:00 0:00
Introduction
All Verses

1. „Fylg þú mér,“ sagði frelsarinn. Fótspor hans þræðum glöggt með sinn, einungis þannig öðlumst frið elskaðan himnasoninn við.

2. „Fylg þú mér,“ virðast einföld orð. Er þó sem hlaðið viskuborð sé ofið hér í einfalt mál, andlega’ að vekja mannsins sál.

3. Er oss þá nóg að vita’ að vér verðum honum að fylgja hér, um fallinn, tárum fylltan geim? Nei, förin er í æðra heim.

4. Ekki þó aðeins eigum vér eftirmynd hans að vera hér, heldur, þá leyst úr líki manns lögarfar gerast meistarans.

5. Vér munum ætíð áfram þá opnari víddir til að sjá fylgja’ honum ótrauð, óháð hver örlögin verða þar og hér.

6. Dýrðir, tign, ríki, virðing, vald veitist oss bak við huliðs tjald, ef vér þar hlítum eins og hér orðum vors Drottins: „Fylg þú mér.“