Book cover

Kom, heyrið spámann hefja raust

Sálmar, 8


0:00 0:00
Introduction
All Verses

1. Kom, heyrið spámann hefja raust og heyrið Drottins mál. Hátt syngið fögnuð, trú og traust af tryggum hug og sál. Vér fundum spámannanna fornu mennt, er fyrr hér byggðu rann. Annan spámann hefur Herrann sent að hefja’ upp sannleik þann.

2. Þann tálar sorta’ er veg sér vann um víðan jarðar stig fordæmdan Drottinn hefur hann og Herrann birti sig. Sú villa glötun veröld bjó sem vá tortímileg. Loks fundu þjónar Drottins þó hinn þrönga, krappa veg.

3. Þeir treysta eigi’ á mannsins mátt né manna hyggjulist. Þá dæmda vissu’ úr allri náð, sem ekki trúa’ á Krist. Hann sagði: „Boð mín öll og ein aðgæt og bræðralag.“ Og tákn mun sýna trúin hrein allt til hinn efsta dag.

4. Því meðtak orðsins líf og ljós úr lindum sannleikans, lát lög Guðs vitna verðugt hrós útvalning helgaðs manns, uns heyrir þú Guðs helgan róm sig hefja’ um alheiminn, eilífan kynna konungdóm sem kynni’ að verða þinn.