Book cover

Börn vors Drottins

Sálmar, 14


0:00 0:00
Introduction
All Verses

1. Börn vors Drottins, ljúft vort lag látum hljóma glatt í dag; sigri Drottins syngjum ljóð, syngjum fögnuð landi’ og þjóð; brátt hann ræður ríki’ á jörð, réttlát verður skipan gjörð, engir menn í syndum sjást, saman lifa’ í friði’ og ást.

2. Ó, hve fagna fáum þá, frelsarinn oss verður hjá. Við hans komu’ og veru hér, vonskan öll í burtu fer. Þá hans dýrð hve dýrkum vér, Drottinn vor og kóngur er. Ó, hve ástin öll fær ráð, ótta’ og kvíða’ ei lengur háð.

3. Hvít í búning hreinleikans, hér í ljósi sannleikans, hátt þá látum hljóma óð, hamingjunnar dýrðarljóð. Hvergi neina synd að sjá, sérhvert líf þá jörðu á, fegurð, ást og fögnuð sinn, finnur streyma’ í hjartað inn.