Book cover

Trú vorra áa

Sálmar, 89


0:00 0:00
Introduction
All Verses

1. Trú vorra áa enn er til eldur og sverð þótt fari’ um storð, hjörtun því fagna, fyllast yl, fagnandi nema Drottins orð.

Trú vorra áa ætíð skín, ávallt sú trú skal vera mín.

2. Trú vorra áa; ætíð vér ætlum að stríða fyrir þig, þjóðum að kenna’ að þekkja Guð, þröngan að feta dyggðastig.

Trú vorra áa ætíð skín, ávallt sú trú skal vera mín.

3. Trú vorra áa, elska þín önd vora metti hverja stund, orðum og gjörðum alla tíð eflum þitt ríki’ á hverja lund.

Trú vorra áa ætíð skín, ávallt sú trú skal vera mín.