Book cover

Faðir, þín börn nú vilja flytja þér

Sálmar, 23


0:00 0:00
Introduction
All Verses

1. Faðir þín börn nú vilja flytja þér fagnandi þakkir af vörum sér, verndina fyrir sem þú veittir þeim, vegur þó liggi um grimman heim, ljósið sem skín þínu orði í, okkur svo gleði þín vermi hlý, glöð því að betri hlutinn völdum vér, viljum nú lofsönginn flytja þér.

2. Heyrðu hvað syngjum vér nú sætum róm, söngurinn fylli þinn helgidóm, styrk okkar vilja til að þóknast þér, þá mun allt létt sem að höndum ber. Sýn okkur miskunn í syndaþraut, sannleikans veg fyrir lasta braut, hjartnanna þakkir okkar hlýddu á, hljómi nú lofsöngvar okkur frá.