Book cover

Fyrir þessa fögru jörð

Sálmar, 24


0:00 0:00
Introduction
All Verses

1. Fyrir þessa fögru jörð, fyrir himins glæsta sýn, fyrir Drottins dýra ást, dag sem hvern ég veit er mín,

Drottinn þér skal láta’ í ljós lof og dýrð og þökk og hrós.

2. Fyrir hverja fagra stund, fyrir sérhvern dag sem nótt, dali, hæðir, laufgan lund, ljósið himintungla rótt,

Drottinn þér skal láta’ í ljós lof og dýrð og þökk og hrós.

3. Fyrir milda móðurást, mjúka’ og styrka föður hönd, bróðurþel og kærleiks koss, kunningsskap og vinabönd,

Drottinn þér skal láta’ í ljós lof og dýrð og þökk og hrós.