Book cover

Nú rís í trú

Sálmar, 100


0:00 0:00
Introduction
All Verses

1. Nú rís í trú, láta óma orð um æðstan Jesú Krist, hann sjálfur einn er sonur Guðs, það sannlegt er og víst, svo rís með von og lýs um láð með ljósi sannleikans að allar þjóðir eru jafnt í öllu börnin hans.

2. Nú rís með kærleik, boðskap ber um blessun skyldleikans, að æ með þeim er unnum vér um eilífð bindum krans, svo rís til starfa, rétt fram hönd, en reikna engin laun, og Guð svo mun þér gjalda sanna gleði’ af hverri raun.

3. Nú rís með þrótti, flyttu frétt um fagnaðar’boðskapinn og alla von um eilíft líf í orði Krists nú finn, svo rís og boða orð hans allt um ást og gleði’ og frið, að fyrirheiti’ um frelsi Guðs svo fagni mannkynið.