Book cover

Leið oss, mikli himna Herra

Sálmar, 28


0:00 0:00
Introduction
All Verses

1. Leið oss, mikli himna Herra, heim í dýrðar þinnar land veikum oss þér hald í hendi hindra sérhvert búið grand. Helgi Andi, Helgi Andi, vernda oss til komu Krists, Vernda oss til komu Krists.

2. Opna Síons ljúfu lindir, lát oss blessun draga’ úr þeim, elds og skýjastólpann sterka stefnu marka til þín heim. Lausnar Herra, lausnar Herra, lát oss dýrðardaginn sjá, Lát oss dýrðardaginn sjá.

3. Hugarstilling, Herra, veit oss, heimurinn þá skjálfa fer. Dómar þínir þungt er falla, þá í Síonsborg oss ver. Lát þar hljóma lofsöngs óma, lofsöngva til dýrðar þér, Lofsöngva til dýrðar þér.