Book cover

Á háum fjallsins hnúk

Sálmar, 4


0:00 0:00
Introduction
All Verses

1. Á háum fjallsins hnúk, við himinfána ber, ó, horfið upp til hans, hann heimsins leiðsögn er. Í fegurð lands við frið og sátt, á fjalli Síons blaktir hátt.

2. Því Drottins dýrmæt orð, á dögum fornum gjörð, að send´ á Síons hæð sín sannleiks boð á jörð. Þau ljóma skulu´ og lýsa þeim sem ljóssins njóta´ um allan heim.

3. Þar honum dýrlegt hús til heiðurs rísa skal. Um löndin fregn sú fer og fólksins hljómar tal: Vér viljum þjónar vera hans og veginn finna sannleikans.

4. Þar lög hans leiða oss á lífsins sönnu braut, oss viskan veitast mun, sem veröld æðsta hlaut. Um eilífð vor sé vegur hans í vernd og miskunn kærleikans.