Book cover

Guðs barnið eitt ég er

Sálmar, 112

0:00 0:00
Introduction
All Verses

1. Guðs barnið eitt ég er, hann um mig heldur vörð, og pabba’ og mömmu mér hann gaf og mína fósturjörð.

Leið mig, viltu vísa mér á veg sem treysta má. Kenn mér allt sem get ég gert, svo Guði verði’ ég hjá.

2. Guðs barnið eitt ég er, og ekki margt hef reynt; kenn mér svo hans ég eignist orð, og ekki verði’ of seint.

Leið mig, viltu vísa mér á veg sem treysta má. Kenn mér allt sem get ég gert, svo Guði verði’ ég hjá.

3. Guðs barnið eitt ég er, það æðsta blessun tel, ef læri’ ég hans að hlýða rödd, ég honum líf mitt fel.

Leið mig, viltu vísa mér á veg sem treysta má. Kenn mér allt sem get ég gert, svo Guði verði’ ég hjá.

4. Guðs barnið eitt ég er og öruggt heit hans ber, að æðstu dýrð hann ætlar mér, ef honum trú/r ég er.