Book cover

Trú mín er á Krist

Sálmar, 34


0:00 0:00
Introduction
All Verses

1. Trú mín er á Krist, hann kóngur er, með lofsöngshljóm frá hjarta mér nú gjalli rödd með gleðimál sem gleðji’ og hrífi hverja sál. Trú mín er á Krist, Guðs son er sá, hans sál kom hingað jörðu á, með krafti Guðs hann verkin vann, nú vegsamist og lofist hann.

2. Trú mín er á Krist, ó, tignaða orð, af konu fæddur kom á storð að dauðlegt hold í fjötrum fætt sé frelsi hans og anda gætt. Trú mín er á Krist, vort leiðarljós, af gleði syng ég honum hrós, hann bauð oss föllnum: Fylgið mér, í faðmi Guðs svo búið þér.

3. Trú mín er á Krist, minn kóng, minn Guð, hans kenning æ sé vegsömuð, hans sannleiks ljós æ lýsir enn, því lofa hann og tigna menn. Trú mín er á Krist, hann frelsað mig fær, er freistinganna hrammur slær, í ást og trú um eilífð bý með útvöldum hans ríki í.

4. Trú mín er á Krist, hann æðstur er, af anda sínum veitir mér, hans raust mér gleðiboðskap ber, í beiskri nauð hann lýsir mér. Trú mín er á Krist, svo hvað sem er nú koma má og ógna mér, hans endurkoma er mér vís þá upp hans veldi’ á jörðu rís.