Book cover

Um Jesú ég hugsa

Sálmar, 65


0:00 0:00
Introduction
All Verses

1. Um Jesú ég hugsa og undrast hans ást til mín, með endurlausn sinni hann leiðir mig heim til sín. Mig angrar að mín vegna kvalinn á krossi var, en kærleikur hans mér við spurningum veitir svar.

Ó, hvílík dásemd að hann skyldi hugsa’ um mig. Og hann dó fyrir mig. Ó, hve dásamleg dýrð, dýrð hans fyrir mig.

2. Mig furðar að hann kom til jarðar frá himins dýrð, svo hrokafull sál mín til frelsunar yrði skírð. Að ástin hans víðfeðma veraldar leiðum á, hún veitir mér lausnina syndunum mínum frá.

Ó, hvílík dásemd að hann skyldi hugsa’ um mig. Og hann dó fyrir mig. Ó, hve dásamleg dýrð, dýrð hans fyrir mig.

3. Ég hugsa um stungnar og blæðandi hendur hans og hans náð og kærleik, er ber hann til sérhvers manns. Ég máttinn hans tigna og miskunnar heilög vé, uns mun ég við dýrðlega fótskör hans beygja kné.

Ó, hvílík dásemd að hann skyldi hugsa’ um mig. Og hann dó fyrir mig. Ó, hve dásamleg dýrð, dýrð hans fyrir mig.