1. Til þín, Kristur, bljúg vér berum bæn þá fram, að andi þinn, er vér blessum brauð og vatnið, berist hingað til vor inn. Lát oss stöðugt hafa’ í huga hver þín leiðin var á kross, þar sem dauðans böl þitt barstu, blóði drifinn fyrir oss.
2. Fyll vor hjörtu friðar anda, fórnarvilja’ og kærleikslund. Lát þú vorar bænir berast beint til himins á þinn fund. Þegar sönnum vér að var oss verðug guðleg fórnin þín, nálægð þína þá oss veittu, þar sem dýrðar ljóminn skín.