Book cover

Náðugi konungur, Nasaret frá

Sálmar, 63


0:00 0:00
Introduction
All Verses

1. Náðugi konungur, Nasaret frá, fallinna friðþæging, fullkomnun há. Úr himna helgum stað hingað á jörð komst til að ljá þitt líf lifenda hjörð.

2. Er þetta blessað brauð brjótum í dag, hold þitt er nísti nauð, níðinga slag, sárþjakað, táið tætt, titrandi’ á kross. Lofgjörð fram líður heit, Lamb Guðs frá oss.

3. Kaleikinn bergjum blítt, berandi’ að vör, dreyrann er draup þar strítt, dauðlegra kjör. Hvar sem vor liggur leið, líf vort uns þver, fylg oss, að fyllra líf finnum hjá þér.