Book cover

Fagna þú veröld

Sálmar, 76


0:00 0:00
Introduction
All Verses

1. Fagna þú veröld, fagna hátt, því frelsarinn borinn er. Lát sérhvert hjarta hýsa hann, vorn himinborna konungsmann. Lát hefja helgan söng, um himna’ og jarðar göng. Lát hefja, hefja glaðan helgisöng.

2. Fagna þú veröld, fagna hátt, því frelsarinn borinn er. Nú veröld hljómi ein og öll um ystu lendur, firði’ og fjöll þann glaða enduróm, þann glaða enduróm. Þann glaða, söngva glaða enduróm.

3. Lát eigi framar sorg né synd vorn særa þjáðan heim, því Kristur kom með næga náð og nóg við öllu sigurráð. Hann veitir næga náð, hann veitir næga náð. Hann veitir öllum mönnum næga náð.

4. Senn mun hann ríkja’ í mildi’ og náð og mannkyn fá að sjá og reyna undra elsku hans og eilíft gildi sannleikans. Sjá undraelsku hans, sjá, undraelsku hans. Sjá, undraelsku hans, sjá elsku hans.