Book cover

Það aldin út er sprungið

Sálmar, 75


1. Það aldin út er sprungið og ilmar sólu mót, sem fyrr var fagurt sungið af fríðri Jesserót. Og blómstrið það á þrótt að veita vor og yndi um vetrar miðja nótt.

2. Þú ljúfa lilju rósin sem lífgar helið kalt og kveikir kærleiks ljósin og krýnir lífið allt. Ó, Guð og maður greið oss veg frá öllu illu svo yfirvinnum deyð.