Book cover

Ó, Guð á himni háum

Sálmar, 71


0:00 0:00
Introduction
All Verses

1. Ó, Guð á himni háum, vor hjálp er Jesú frá, er bæn þá til þín berum, sem byggð er trú vorri’ á. Vort brauð og vatn þú blessir, sem ber oss guðleg stjórn, svo vér þess minnast megum hve máttug er hans fórn.

2. Sú fórn sem fæstir skildu, að frelsun vor hún er, að hold og blóð vorn huga til hans í lotning ber. Oss veg þíns sonar vísar og vottar þjáning hans, hans andi’ er leið oss lýsir, er ljósið sannleikans.

3. Er Jesús fórn þá færði, að flytja’ á jörð til vor, hans ást til allra manna og endurlausnarspor, var fyrirheita fylling um frelsun syndugs manns, sú blessun heimi borin, var boðskapurinn hans.

4. Hve háan vísdóm hafa þau heilagleikans ráð, að fullkomna þá frelsun, sem færði’ oss Drottins náð, að hann á meðal manna hér mannsins gerfi bar og dauðans fórn þá færði, sem frelsun mannsins var.