Book cover

Ó, Jesús bróðir besti

Sálmar, 115


1. Ó, Jesús bróðir besti og barna vinur mesti, æ, breið þú blessun þína á barnæskuna mína.

2. Mér gott barn gef að vera og góðan ávöxt bera, en forðast allt hið illa, svo ei mér nái´ að spilla.

3. Það ætíð sé mín iðja að elska þig og biðja, þín lífsins orð að læra og lofgjörð þér að færa.

4. Þín umsjón æ mér hlífi í öllu mínu lífi, þín líknarhönd mig leiði og lífsins veginn greiði.

5. Mig styrk í stríði nauða, æ, styrk þú mig í dauða. Þitt lífsins ljósið bjarta þá ljómi´ í mínu hjarta.

6. Með blíðum barnarómi mitt bænakvak svo hljómi: Þitt gott barn gef að veri og góðan ávöxt beri.