Book cover

Ó, borgin litla, Betlehem

Sálmar, 81


0:00 0:00
Introduction
All Verses

1. Ó, borgin litla, Betlehem, þú bíður í djúpri ró, í heimi drauma dagsins glaumi dreifir á þagnarskóg. Þó lýsir ljósið bjarta, það ljós er aldrei dvín, sú von og trú er væntir þú hún verður loksins þín.

2. Í heim er fæddur frelsarinn en fögur englahjörð hjá sveini vakir, vernd einstaka veitir Kristi’ á jörð. Ó, flytjið fregn um heiminn þér fögru himinljós um dýrð á jörð með Drottins hjörð og Drottni sigurhrós.

3. Ó, litla barn frá Betlehem, ég bið þig, kom til mín, svo megi’ ég finna fögnuð þinn, þinn friður aldrei dvín. Nú englar allir syngja svo ómar geimurinn. Í kærleik þínum kom til mín, Ó, Kristur, Drottinn minn.