Book cover

Guðs kristni í heimi

Sálmar, 85


0:00 0:00
Introduction
All Verses

1. Guðs kristni í heimi, krjúp við jötu lága. Sjá, konungur englanna fæddur er. Himnar og heimar láti lofgjörð hljóma.

Ó, dýrð í hæstu hæðum. Ó, dýrð í hæstu hæðum. Guðs heilagi sonur, ó dýrð sé þér.

2. Sjá, himnarnir opnast. Hverfur nætursorti, og himneskan ljóma af stjörnu ber. Heilagan lofsöng himinhvolfin óma.

Ó, dýrð í hæstu hæðum. Ó, dýrð í hæstu hæðum. Guðs heilagi sonur, ó dýrð sé þér.

3. Já, dýrð sé í hæðum Drottni, Guði vorum, og dýrð sé hans syni, er fæddur er. Lofsöngvar hljómi. Himinhvolfin ómi:

Ó, dýrð í hæstu hæðum. Ó, dýrð í hæstu hæðum. Guðs heilagi sonur, ó dýrð sé þér.