Book cover

Bænin er andans einlægt mál

Sálmar, 46


0:00 0:00
Introduction
All Verses

1. Bænin er andans einlægt mál, opinber eða hljóð, hreyfing sem innra bærir bál og brýst um í hjartans glóð.

2. Bænin er andvarp innra manns, örhljótt sem falli tár, upplyftar sálarsjónir hans er sér aleinn Drottinn hár.

3. Bæn er á vörum barna smá byrjunar fegurst hjal, ómróf sem helgast heyra má í himnanna dýrðarsal.

4. Bæn er hins kristna móðurmál, meðfæddur andblær hans, hið dýra orð við dauðans ál og dyr til himna ranns.

5. Bænin er hróp hins breyska manns brott er frá illu sté. Og englar fagna iðrun hans: „Sjá, auðmjúkt hann beygir kné.“

6. Guðsbörnin eru’ í bæn sem eitt, bæði’ í orði’ og dyggð, við Guðdóminn samband hafa heitt í helgun sannri’ og tryggð.

7. Bænin er ekki andvarp hér aðeins um mannheims ból, því Kristur og andinn oss fram ber ástríkt við Guðs náðarstól.

8. Ó, þú, sem opnar lýðum leið í lífi, sannleik, trú og kraupst til bænar kraminn neyð kenn oss að biðja nú.