Book cover

Þakkargjörð vér þyljum

Sálmar, 51


0:00 0:00
Introduction
All Verses

1. Þakkargjörð vér þyljum þessa kveðjustund, lofgjörð hinum hæsta hljómi’ á alla lund fyrir alla elsku, alla hjálp í þröng. Helgidagsins heiði hljómi gleðisöng.

2. Gæsku Guðs og mildi glöð vér þökkum öll, að hann ávallt heyrir okkar bænaköll, látum ljúfa söngva lýsa þakkargjörð, honum einum heyrir hrós á vorri jörð.

3. Öll um okkar söngvum eyra ljáðu nú, bljúg vér kné vor beygjum, biðjum þig í trú, vernd í neyð og villu veittu hverja stund, hjálp oss þrátt að þjóna þér á alla lund.