Book cover

Vitnisburður

Sálmar, 37


0:00 0:00
Introduction
All Verses

1. Þann vitnisburð sem allt mér er frá andanum hann hlýt, hann lyftir mér í hæstu hæð svo himins dýrð ég lít.

2. Ég veit þú býrð í himni hám, við hlið þér frelsarinn, í spámannsorðum einnig ég um eilífð blessun finn.

3. Mér vöknar brá, mitt hjarta’ er heitt og helgan Guð ég bið: Ó, endurnýja allt mitt líf og æ mér veittu lið.

4. Sá vitnisburður veitir stoð að vinna daglegt stríð. Eitt andartak í leiftri lít ég ljósin himins blíð.