Book cover

Þér öldungar fólksins

Sálmar, 119


0:00 0:00
Introduction
All Verses

1. Þér öldungar fólksins nú fylkið með mér að finna hvern réttlátan hvar sem hann er, hvort finnst hann á landi, við fjöll eða sæ að færa til Síon í hreinleikans blæ.

Úr syndanna’ og lastanna’ og sorganna stað í Síon vér fagnandi göngum í hlað.

2. Vor uppskera’ er mikil en mannfá vor sveit, þó megnum vér saman að erja hvern reit, úr illgresis viðjum hvert ax leysa skal svo ávöxt það beri í Síonardal.

Úr syndanna’ og lastanna’ og sorganna stað í Síon vér fagnandi göngum í hlað.

3. Og sjúka og fátæka finnum vér enn, já, fátæka, þreytta og hungraða menn, og fagnaðarerindið færum vér þeim að flytji þeir með oss til Síonar heim.

Úr syndanna’ og lastanna’ og sorganna stað í Síon vér fagnandi göngum í hlað.