1. Á förnum vegi fátækanég förumanninn hitti þann,er auðmjúkt svo um aðstoð bað,að aldrei neitað gat um það.Ég spurði’ ei neitt um nafn þess mannsné nánar vissi’ um ferðir hans.Samt bar hann eitthvað í auga sér,sem alúð dulda vakti mér.
2. Eitt sinn er reiddi ég málsverð minnsá maður orðlaust gekk hér inní heljarsárri hungursnauð,svo honum gaf ég allt mitt brauð.Hann blessaði og braut það þáog bauð mér nokkurn hluta fá,en skorpan varð í munni mérsem Manna komið væri hér.
3. Þá sá ég manninn máttlausan,þar mikið vatn af kletti rannsem ögrun beisk í þorstans þrautog þar með straumhratt burtu flaut.Ég tók hann þar sem þjáður kraupog þrisvar tæmdi hann mitt staup,þá deif því, bar mér barmarennt,svo brá; ég hef ei þorsta kennt.
4. Eitt kvöld með flóði’ og fimbulvindog fellibylinn hæst við tindég rödd hans heyrði’ og brátt við bráog bauð í húsaskjól mér hjá.Ég vermdi, gladdi gestinn þannog gekk úr rúmi fyrir hann,á gólfi sjálfur lágt ég lá,en leið sem Eden gisti þá.
5. Við veginn nakinn, dauða nærég næst hann sá, og lífi fjær,tók hjartslátt, öndun æfði hrattog andann styrkti’ um sárin báttog dreypti víni’ í voðans und,þá varð hann heill á samri stund,þar féll minn hroki’ á fórnar stig,en friður Drottins signdi mig.
6. Í fangelsi’ undir dauðadómmenn dæmdu’ hann vægðarlausum róm.Ég brýgslin lægði’ og lygar þarlyfti honum til virðingar.Þá spurði’ hann, mest sem reyndi mig:„Hvort myndi’ ég deyja fyrir sig?“Í örvinglan, sem enn ei skilminn andi sagði frjáls: „Ég vil.“
7. Með örskots hraða af sér bráhinn ókunnugi hulu þá.Hans lófasár ei leyndu sér,ó, Lausnarinn stóð þar hjá mér.Hann mælti’ og nafn mitt nefndi þar:„Mitt nafn þú hófst til virðingar.Slík góðverk verði grafskrift þín,þú gerðir þau öll vegna mín.“
Texti: James Montgomery, 1771–1854
Lag: George Coles, 1792–1858, alt.
Spámaðurinn Joseph Smith unni þessum sálmi heitt. Sjá History of the Church, 6:614–15
Íslensk þýðing: Jón Hjörleifur Jónsson, 1923